Veglegir tónleikar 25. mars 2007 07:00 Kvennakór Kópavogs flytur fjölbreytta efnisskrá í Salnum í tilefni afmælisins.
Kvennakór Kópavogs fagnar fimm ára afmæli sínu með tónleikum í Salnum í dag. Kórinn var stofnaður af Natalíu Chow Hewlett. Fjöldi kórkvenna hefur verið breytilegur þessi fimm ár, síðustu misserin um 35-45 konur. Kórinn hefur keppt að því frá stofnun að taka þátt í kórakeppninni Musica Mundi í Búdapest og í apríl láta kórfélagar þann draum sinn rætast og ferðast þangað austur til að reyna sig við raddir meginlandsins. Tvennir tónleikar hafa verið haldnir flest starfsárin og hefur kórinn oftast staðið einn að þeim. Efnisskrá kórssins hefur verið fjölbreytt, til dæmis þjóðlög frá ýmsum löndum, kikjutónlist, bítlalög og negrasálmar. Kórinn hefur líka sungið á fjölmörgum tungumálum öðrum en íslensku eins og ensku, ítölsku, latínu, þýsku, kínversku og ungversku. Undirleikari kórsins frá upphafi hefur verið Julian Hewlett en tónleikunum á sunnudag fær kórinn einnig liðstyrk, söngkonan Regína Ósk Óskarsdóttir mun syngja einsöng með kórnum auk þess sem ungar raddir Englakórsins hljóma. Tónleikarnir á sunnudag hefjast kl. 14.
Mest lesið Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Echoes of the End: Íslensk frumraun undir góðum áhrifum stríðsguðsins Leikjavísir Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Lífið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum Lífið 50+: Hræðslan við að eldast útlitslega og góð ráð Áskorun „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Lífið Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Lífið samstarf Fyrsta tónlistarfólkið á almyrkvahátíðinni kynnt til leiks Lífið Fleiri fréttir Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira