Scarlett elskar að vinna með Hebu Þórisdóttur 7. nóvember 2007 09:00 Heba Þórisdóttir mun sjá um að farða Scarlett Johannsson í næstu tveimur myndum. Heba var nýverið valin besti förðunarsérfræðingurinn í Hollywood. „
Ég má ekkert tjá mig um þessar tvær myndir og er bundin algjörum trúnaði við framleiðendur hennar,“ segir Heba Þórisdóttir, förðunarsérfræðingur í Hollywood, en hún mun sjá um förðun bandarísku stórleikkonunnar Scarlett Johansson í næstu tveimur myndum hennar. He‘s just not that into You og The Spirit verða því sjötta og sjöunda myndin sem Heba sér algjörlega um förðun Scarlett en saman hðfðu þær unnið að myndum á borð við The Island, The Prestige og The Other Boeylyn Girl. Sú síðastnefnda er reyndar mikið búninga-og förðunardrama og reyndi því töluvert á hæfileika Hebu en meðal annarra leikara í myndinni eru Eric Bana og Natalie Portman. Í viðtali sem Fréttablaðið átti við Hebu fyrir einu og hálfu ári kom fram að þegar hún og Scarlett hittust fyrst við gerð The Island hafi farið svo vel á með þeim að Scarlett vildi helst enga aðra en Hebu fyrir myndir sínar. Og það hefur nú komið á daginn. Heba verður ekki síður umkringd stjörnum við næstu tvær kvikmyndir en meðal leikara í He‘s Just not That Into You eru Vina-leikkonan Jennifer Aniston, Jennifer Connelly og Ben Affleck. Stórstjörnuflotinn er engu minni í The Spirit en þar koma við sögu leikarar á borð við Evu Mendez og Samuel L. Jackson en leikstjóri þeirra myndar er Frank Miller, hugmyndasmiðurinn á bakvið Sin City. Og förðunarfræðingurinn viðurkennir að það sé óneitanlega gott að vera komið í svona náið samstarf við Scarlett sem er ein eftirsóttasta leikkona heims um þessar mundir. „Já, því er ekki hægt að neita,“ segir Heba sem hefur einnig unnið náið með Cate Blanchett. Förðunarsérfræðingar vinna náið með leikurunum og í raun má segja að stjörnurnar leggi allt sitt traust á þá að þeir komi sem best út fyrir framan tökuvélarnar. Og svo vel þykir Hebu hafa tekist upp með Scarlett og Cate að tímaritið WWD-Beatuy, sem er eitt virtasta tískutímariti Bandaríkjanna, valdi Hebu besta förðunarsérfræðinginn í Hollywood, fáum tækist að koma fegurð leikkvenanna jafn vel til skila á hvíta tjaldið og Hebu.
Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Lífið Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Lífið Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Lífið Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig Lífið Samdi lagið meðan hún gekk í gegnum erfiða tíma Tónlist Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Fleiri fréttir Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sjá meira