Fær bætur vegna flutnings í starfi 25. maí 2007 15:19 MYND/E.Ól
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag íslenska ríkið til þess að greiða hjúkrunarfræðingi hálfa milljón króna í bætur vegna tilfærslu í starfi innan Landspítalans sem var talin íþyngjandi. Hins vegar hafnaði dómurinn kröfu hjúkrunarfræðingsins um að tilfærslan yrði dæmd ógild. Konan starfaði á geðdeild Landspítalans við Hringbraut og sakaði samstarfsmaður hennar hana um kynferðislega áreitni eftir vinnustaðateiti. Var það til þess að hún var flutt í starfi yfir á Klepp. Við það sætti hún sig ekki og fór með málið fyrir dómstóla. Hjúkrunarfræðingurinn mótmælti því að hún hefði áreitt starfsfélaga sinn og sagði ákvörðun yfirmanna sinna bera öll merki refsingar. Þá hélt hún því fram að flutningurinn hefði haft slæm áhrif á hana og leitt til þess að hún væri ekki vinnufær. Þá hefði mál þetta komið illa við hana fjárhagslega. Dómurinn féllst ekki á kröfu hennar um að ógilda flutninginn þar sem ekki var talið að hún hefði lögvarða hagsmuni af því að hafa uppi sérstaka ógildingarkröfu, en henni hefði ekki verið sagt upp. Hins vegar komst dómurinn að því að tilfærslan hefði ekki byggst á málefnalegum sjónarmiðum og að yfirmenn deildarinnar hefðu allt eins geta flutt hinn starfsmanninn en hann hefði verið tilbúinn til þess. Þá kemst dómurinn einnig að því að tilfærslan hafi verið meira íþyngjandi fyrir hjúrkunarfræðinginn en efni stóðu til. Hún hafi verið brot gegn æru og persónu konunnar og til þess fallin að gefa alvarlegum ásökunum starfsfélaga hennar byr undir báða vængi og valda konunni miklum álitshnekki og andlegri vanlíðan. Voru henni því dæmdar 500 þúsund krónur í miskabætur.
Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Sjá meira