Samningur í skoðun í sjö ár 23. júlí 2007 04:45 Ráðuneytið hefur verið í sjö ár að meta breytingarnar til að fullgilda samningana. Nordicphotos/afp
Íslenska ríkið hefur undirritað en ekki fullgilt þrjá samninga sem snúa að baráttu gegn alþjóðlegu mansali, skipulagðri glæpastarfsemi og hryðjuverkum. Fastafulltrúi Íslands undirritaði Palermo-samning Sameinuðu þjóðanna gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi árið 2000, en hann bíður enn fullgildingar. Hins vegar hafa ákvæði samningsins verið innleidd að nokkru leyti í íslensk hegningarlög. Þannig var tekið tillit til hans við lagabreytingar árið 2003 og varð það til þess að mansal var gert refsivert á Íslandi. Samningur Evrópuráðsins gegn mansali var undirritaður árið 2005 og hefur heldur ekki verið fullgildur. „Við vildum sjá þróunina og þær lagabreytingar sem hafa verið gerðar í löndunum í kring um okkur. Það þarf að skoða mjög vandlega hvað samningurinn felur í sér,“ segir Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu. Að auki fer refsiréttarnefnd dómsmálaráðuneytisins yfir samning Evrópuráðsins um varnir gegn hryðjuverkum og ætlar að afgreiða alla samningana í einu. Spurð hvort eðlilegt megi teljast að alþjóðasamningar séu svo lengi í skoðun, segir Ragna að samningarnir taki til mjög flókinna refsiréttarlegra atriða. Til dæmis sé Palermo-samningurinn viðamikill og nokkurn tíma hafi tekið að þýða hann. Hún á þó von á því að refsiréttarnefnd skili af sér tillögum í haust.
Mest lesið Komust af sjálfsdáðum út úr brennandi íbúð í nótt Innlent Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Erlent Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni Innlent Skiptast á að gæta barnanna á meðan þau bíða eftir plássi Innlent Fótbrotinn og févana í Afríku Innlent Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Innlent Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Innlent Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Leituðu skjóls í Hreysinu Bein útsending: Landssamráðsfundur gegn ofbeldi „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Hrunvarnir við Holtsnúp verði tilbúnar í ágúst Búið að opna veginn um Raknadalshlíð eftir flóðið Skiptast á að gæta barnanna á meðan þau bíða eftir plássi Komust af sjálfsdáðum út úr brennandi íbúð í nótt Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Karólína Helga leiðir Viðreisn í Hafnarfirði Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Einar Geir oddviti Miðflokks í Hafnarfirði Vegum lokað í kjölfar snjóflóðs í Raknadalshlíð Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ „Djöfulsins feita piggið þitt!“: Slapp með hótun sem hræddi ekki Samfylkingin og ríkisstjórnin lækka flugið Rósa vill leggja fjölmiðlanefnd niður Fótbrotinn og févana í Afríku „Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“ Um 140 íslenskir ríkisborgarar á áhrifasvæðum átakanna Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Láta alla nemendur sem mega þreyta samræmdu prófin Hádegisfréttir Bylgjunnar: Aðalspurningin hvort fleiri blandist inn í átökin „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Þau skipa lista Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Sjá meira