Innlent

Veitingahús í sögufrægu húsi

Sögufrægt hús, sem áður hýsti Kaupfélag Eyfirðinga var tekið í notkun á ný í síðustu viku. Húsið er hundrað ára gamalt og stendur við Kaupvangsstræti 6 á Akureyri.



Engin starfsemi hefur verið í húsinu undanfarna þrjá áratugi en það er í eigu KEA. Í febrúar var gerður samningur milli KEA og Friðriks V um uppbyggingu og leigu á húsnæðinu næstu tíu árin.



Húsið er um 460 fermetrar. Á efri hæð þess er veitingahúsið sjálft staðsett og hefur það þegar verið tekið í notkun. Á neðri hæð verður sælkeraverslun og hádegisverðarstaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×