Innlent

Skortur á jafnvægi í hagstjórn

Jónas H. Haralz
Jónas H. Haralz

Efnahagsmál Jónas H. Haralz, hagfræðingur og fyrrverandi bankastjóri, segir íslensk stjórnvöld ekki hafa rekið nógu staðfasta jafnvægis­stefnu í hagstjórn landsins og án hennar náist ekki sá stöðugleiki sem sé forsenda heilbrigðs hagvaxtar. Stöðugleikinn sé jafnframt forsenda fyrir því að eiga þess kost að taka upp evruna.



„Þessi ágæta tilraun með sjálfstæðan seðlabanka og fljótandi gengi sem við tókum upp var skynsamleg og rétt – en það hefur gengið mjög illa að framkvæma hana,“ segir Jónas í samtali við Fréttablaðið í tilefni af útkomu bókarinnar „Ný staða Íslands í utanríkismálum - Tengsl við önnur Evrópulönd“, sem Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands stendur að, en Jónas á kafla í bókinni þar sem hann rekur þróun íslenskra gengismála á fyrri hluta 20. aldar.



Ástæður þess að þessi tilraun hafi ekki gengið betur en raun ber vitni rekur Jónas að hluta til aðstæðna „sem við ekki ráðum við og að nokkru leyti er það af aðstæðum sem við ráðum við, það er að segja við höfum ekki rekið nógu staðfasta jafnvægisstefnu.“



Spurður hvort hann telji nýrra áherslna í þessu efni að vænta af ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar segist Jónas „ekki hafa heyrt þá tóna“ frá henni sem hann vildi heyra. „Það kom þarna mjög góð greinargerð frá Samfylkingunni fyrir kosningar sem Jón Sigurðsson ritstýrði. Það var mjög að mínu skapi,“ segir hann. „En síðan hef ég ekki heyrt, hvorki frá Samfylkingunni né ríkisstjórninni, neitt í þeim dúr sem ég tel að maður þyrfti að fá að heyra.“

Ný bók Uppistaðan er erindi sem haldin voru á ráðstefnu þann 24. nóvember 2006.


.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×