Innlent

Höfðu ekki tilskilin leyfi

Þyrlurnar voru fastar í nokkra klukkutíma á meðan gengið var frá leyfum. Þær héldu áfram för sinni um klukkan tvö í gær.
Þyrlurnar voru fastar í nokkra klukkutíma á meðan gengið var frá leyfum. Þær héldu áfram för sinni um klukkan tvö í gær. bb.is/halldór

Fimm erlendar þyrlur og fylgivél þeirra voru kyrrsettar á Ísafjarðarflugvelli í nokkrar klukkustundir á mánudag. Þyrlurnar komu til Ísafjarðar frá Höfn í Hornafirði á leið sinni til Bandaríkjanna.



Að sögn Valdísar Ástu Aðalsteinsdóttur, upplýsingafulltrúa Flugmálastjórnar, hefur Ísafjarðarflugvöllur aldrei verið skilgreindur sem millilandaflugvöllur. Vegna þess má ekki fljúga þaðan til annarra landa nema í undantekningartilvikum og með sérstökum leyfum. Þá þarf fyrsti viðkomustaður að vera einn fjögurra millilandaflugvalla á Íslandi, en þeir eru í Reykjavík, á Akureyri, á Egilsstöðum og í Keflavík.



Þyrlurnar hafa ekki flugdrægni til Grænlands, sem átti að vera næsti viðkomustaður þeirra. Af flugöryggisástæðum fengu þær því sérstakt leyfi til að halda för sinni áfram. „Þetta er einstakt leyfi sem er bundið við þessar vélar og þetta flug. Það felur ekki í sér að þær fái leyfi til að fara sömu leið til baka,“ segir Valdís.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×