Spila blöndu af því besta 18. júlí 2007 00:00 Fjórar þekktar hljómsveitir verða teknar fyrir hjá Dúndurfréttum í kvöld.
Hljómsveitin Dúndurfréttir heldur nokkurs konar „best of“ kvöld á Gauki á Stöng í kvöld. Sveitin ætlar að spila lög með fjórum uppáhaldshljómsveitum sínum, Pink Floyd, Led Zeppelin, Deep Purple og Uriah Heep. Verður meiri áhersla lögð á Pink Floyd en venjulega. Dúndurfréttir eru í fantaformi um þessar mundir. Skemmst er að minnast tónleika sveitarinnar í Laugardalshöll þar sem hún spilaði plötuna The Wall með Pink Floyd í heild sinni ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands við frábærar undirtektir. Fyrir skömmu spiluðu þeir félagar síðan í Valaskjálfi á Egilsstöðum og voru móttökurnar ekki síðri. „Þetta var þvílíka stuðið,“ segir söngvarinn Matthías Matthíasson. „Þetta gaf nánast Höllinni ekkert eftir. Þetta var ótrúlegt. Ég hef varla spilað svona skemmtilegt gigg lengi fyrir færri áhorfendur.“ Framundan hjá Dúndurfréttum eru tónleikar á landsbyggðinni, þar á meðal á Akureyri. Einnig ætlar sveitin að halda stóra tónleika síðar á árinu þar sem lög Eagles verða í fyrirrúmi, eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá.
Mest lesið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira