Með hesthús og heitan pott í stofunni 30. október 2007 17:01 MYND/WWW.INHOUSE.IS(ÁSMUNDUR)
Dreymi þig um að geta horft á kvöldfréttirnar í heitapottinum við róandi snark í arineldi þá er tækifæri til þess núna. Eigirðu 180 milljónir á lausu eða sért í góðu sambandi við bankann þinn geturðu nú fjárfest í 500 fermetra höll Kópavoginum. Verktakinn Þorgeir Björgvinsson og Klara Guðrún Hafsteinsdóttir hundaræktandi settu nýlega á sölu stórglæsilegt einbýlishús sitt við Asparhvarf í Kópavogi. Húsið er 501 fermetri og skiptist í 410 fermetra íbúð, 31 fermetra bílskúr og sextíu fermetra hesthús fyrir átta hesta. Sérhannaðar innréttingar eru í allri íbúðinni og eru eldhúinnréttingar og sólbekkir búnir svörtum granítplötum. Afar veglegt kolsvart borðstofuborð úr graníti prýðir borðkrókinn, og fylgir það húsinu, enda ekkert grín að flytja mörg hundruð kílóa granítplötur langar vegalengdir. Afar fullkomið gólfhitakerfi er í öllu húsinu. Þá er raflkerfi hússins mjög vandað og mikið af innbyggðri lýsingu frá Lumex. Náttúruflísar eru á öllum gólfum hússins nema í hesthúsi. Ekki væsir um ferfætlingana heldur, en gólf hesthússins er lagt steindúk og básarnir steyptir með grindum úr ryðfríu stáli. Og þar sem líklega er ekki gaman að þrífa fimm hundruð fermetra hús, en það er í það minnsta gert öllu bærilegra með innbyggðum ryksugubörkum í veggjum allra herbergja. Viðar Marínósson, fasteignasali hjá Remax, segir að húsið sé eitt það glæsilegasta á höfuðborgarsvæðinu og að verðmiðinn sé í raun ekki svo fjarri byggingakostnaði. Þannig hafi bara hljóð og sjónvarpskerfið kostað um tíu milljónir króna. Það er frá Bang og Olufsen, afar fullkomið, og er hægt að stýra því með fjarstýringu frá flestum herbergjum hússins. Sjón er sögu ríkari
Mest lesið Hvað veistu um... fugla? Lífið Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Lífið Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Lífið Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Menning Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Sjá meira