Innlent

Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Hitaveita Suðurnesja undirrita samning

Stefán Jónsson framkvæmdastjóri fasteignasviðs FLE, Höskuldur Ásgeirsson forstjóri FLE, Júlíus Jón Jónsson forstjóri Hitaveitu Suðurnesja og Friðrik Friðriksson framkvæmdastjóri sölu- og framleiðslusviðs Hitaveitu Suðurnesja.
Stefán Jónsson framkvæmdastjóri fasteignasviðs FLE, Höskuldur Ásgeirsson forstjóri FLE, Júlíus Jón Jónsson forstjóri Hitaveitu Suðurnesja og Friðrik Friðriksson framkvæmdastjóri sölu- og framleiðslusviðs Hitaveitu Suðurnesja. MYND/FLE

Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. (FLE) hefur undirritað samning við Hitaveitu Suðurnesja hf. (HS) um kaup á raforku og heitu vatni. Við sama tækifæri var undirritaður þjónustu- og samstarfssamningur á milli fyrirtækjanna.

Með samningunum hefur FLE tryggt sér heitt vatn til upphitunar fyrir byggingar sínar á Keflavíkurflugvelli og einnig raforku fyrir alla sína starfsemi.

Þjónustu- og samstarfssamningur við HS tryggir aukið afhendingaröryggi raforku til FLE. Samningurinn nær einnig til reksturs og viðhalds á varaaflstöð sem tryggir FLE ávallt nægt varaafl í straumleysi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×