Ný týpa sem er alltaf hress 2. janúar 2007 12:45 Síhressi maðurinn hans Davíðs Þórs er tilvalinn til þess að hrista upp í leiðinlegum samráðs- og peningafundum.
Tónlistarmaðurinn Davíð Þór Jónsson þykir með skemmtilegri mönnum og er uppátækjasamur með eindæmum. Þessa dagana fóstrar hann nýja persónu innra með sér. „Hann sefur aldrei. Borðar eingöngu rautt kjöt og grænt grænmeti, drekkur dýrt kampavín og er alltaf hress. Yfirgengilega hress.“ Þetta segir Davíð Þór Jónsson tónlistarmaður um einkar athyglisverða persónu sem hann fóstrar innra með sér um þessar mundir. Þessi persóna, sem er enn nafnlaus, leit fyrst dagsins ljós þegar Davíð Þór fór ásamt fleiri íslenskum tónlistarmönnum til New York til þess að spila í opnunarteiti hjá tískuhúsi Luis Vuitton. „Þegar ég vissi að ég væri að fara að spila fyrir allt þetta smarta fólk þá fór ég til Kormáks og Skjaldar og fékk þar dragfín jakkaföt og stíliseruð gleraugu við hæfi. Ég nota ekki gleraugu en það gerir hann og þau fara honum sérstaklega vel. Við þessa umbreytingu birtist þessi magnaði óstöðvandi karakter. Fötin, gleraugun og síðast en ekki síst allt þetta Louis Vuitton snobberí kölluðu hann fram í dagsljósið. Hann er þannig afsprengi snobbmenningarlegs sjokks og líf hans er mótað af því.“ Davíð Þór leggur áherslu á að þessi persóna lifi í samræmi við sköpunarsögu sína; sé ávallt vel klædd, kunni sig einkar vel á mannamótum og þá sérstaklega innan um konur. „Hann er bara svo skemmtilegur og sjarmerandi. Strax við fæðingu stökk hann til og byrjaði að búa til syrpu og það er hans form. Hann býr til Abba-syrpur og Queen-syrpur og hreinlega geysist áfram í tónlistinni en á sama tíma skeytir hann lítið sem ekkert um texta. Þeir einfaldlega skipta hann ekki máli svo hann býr bara til sína eigin án fyrirhafnar.“ En þessi ágæta persóna er þó ekki með öllu gallalaus þar sem Davíð segir að það sé í raun ekki hægt að ræða við hann málin í ró og næði, slíkt sé einfaldlega utan hans persónu. „En hann hefur engu að síður ákaflega skýran tilgang. Hann hentar t.d. mjög vel í veislur og til þess að hrista upp í leiðinlegum fundum. Sjáðu bara fyrir þér tíu karla í jakkafötum á samráðsfundi eða í einhverjum svona leiðinlegum peningabissness, það er eitthvað sem hann getur gefið líf og lyft á hærra plan.“
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira