Innlent

Garðar Thor söng fyrir þúsundir á Wembley

Garðar Thor Cortes á Wembley í dag.
Garðar Thor Cortes á Wembley í dag.

Óperusöngvarinn Garðar Thor Cortes söng í dag á Wembley fyrir tugþúsundir áhorfenda á leik Derby og West Bromwich Albion en liðin bitust um hvort þeirra eigi að leika í efstu deild í ensku knattspyrnunni að ári.

Garðar söng Breska þjóðsönginn í upphafi leiks og uppskar fagnaðarlæti áhorfenda.

Derby sigraði leikinn með einu marki gegn engu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×