Ólafur sakaður um kafbátahernað 28. maí 2007 13:01
Það stefnir í formannsslag í Landssambandi eldri borgara um næstu helgi. Ólafur Ólafsson lýsti því yfir í vetur að hann ætlaði ekki að bjóða sig fram til formennsku en hefur nú skipt um skoðun. Þetta segir Helgi Hjálmsson sem er formannsefni kjörnefndar. Eins og fram kom í fréttum í gær eru miklar væringar innan félags eldri borgara sem heldur sitt þing um næstu helgi þar sem formaður og sambandsstjórn verður kosin. Ólafur Ólafsson hefur gegnt formennsku í landssambandinu en gagnrýnir nú Borgþór Kærnested, framkvæmdastjóra Landssabandsins, harðlega fyrir að vinna gegn sér. Meðal annars hafi Ólafi verið meinaður aðgangur að skrifstofu Landssambandsins. Ólafur segir að Borgþór hafi ritað einum manni í kjörnefnd bréf og kvartað yfir því að Ólafur væri of harður í sínum störfum. Vænta mætti mótframboðs gegn Ólafi, ef hann biði sig fram til áframhaldandi formennsku. Það er varaformaðurinn, Helgi Hjálmsson sem er formannskandidat kjörnefndar. Í samtali við Stöð 2 segir Helgi að hann hafi fallist á að bjóða sig fram þegar eftir því hefði verið leitað. Þá hafi ekki annað legið fyrir en að Ólafur hyggðist draga sig í hlé og hefði hann sjálfur lýst því yfir í vetur á fundi stjórnar. Hafi þetta verið bókað í fundargerðir stjórnar félagsins. Nú hafi Ólafur hins vegar skipt um skoðun og vilji hann gegna formennsku áfram. Helgi segist ekki ætla í stríð á gamals aldri en hann verði í framboði á lista kjörnefndar. Hann sakar Ólaf um kafbátahernað og telur að hann hafi ekki komið fram af heilindum. Framkvæmdastjórn landssambands eldri borgara kemur saman á morgun. Helgi segist vona að þar verði vatnaskil og þessi átakamál leidd til lykta. Aðildarfélög að Landssabandi eldri borgara eru 53 um land allt og eru átján þúsund félagar í sambandinu. v
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Fleiri fréttir „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Sjá meira