Allt að verða klárt fyrir Cruise og Holmes 16. nóvember 2006 12:00
Undirbúningurinn fyrir brúðkaup Toms Cruise og Katie Holmes heldur áfram en Ítalir ráða sér vart fyrir kæti yfir því að stjörnuparið skyldi velja landið þeirra eftir allt fjaðrafokið í kringum hugsanlegt brúðkaup Angelinu Jolie og Brad Pitt við Como-vatnið. Íslandsvinirnir í Ekstrablaðinu danska greina frá því í netútgáfu sinni að Katie Holmes hafi farið í smá verslunarleiðangur í Hollywood á þriðjudaginn og keypt sér æsandi undirföt, náttföt handa sér og manni sínum, Tom Cruise, auk nokkurra efnislítilla nærbuxna fyrir brúðkaupið en talið er að kostnaðurinn við þessi „náttfatakaup" hafi hlaupið á hundruðum þúsunda. Á vefsíðunni MSNBC er síðan haft eftir starfsmanni verslunarinnar La Bra Lingerie, þar sem Holmes er sögð hafa verslað, að nærfötin hafi alls ekki verið „jómfrúarleg". „Enda varla við hæfi þegar hún er einu sinni orðin móðir," sagði starfsmaðurinn. Nærvera Toms Cruise hefur hleypt öllu í bál og brand í miðborg Rómar en leikarinn undirbýr nú brúðkaupið við Braccaiano-vatnið af kappi ásamt móður sinni. Fjöldi æstra aðdáenda vakir og sefur fyrir framan Hassler-hótelið, þar sem Cruise er sagður dveljast, í veikri von um að sjá leikarann smávaxna en öryggisverðir og lögregla varna öllum sem ekki eiga brýnt erindi inn á hótelið inngöngu. Samkvæmt erlendum fréttaveitum er talið líklegt að athöfnin fari fram í gömlum miðaldakastala við vatnið á laugardaginn en kostnaður við brúkaupið er talinn hlaupa á sjö hundruð milljónum íslenskra króna og má reikna með að fjöldi fyrirmenna verði viðstaddur þegar þau Holmes og Cruise ganga í það heilaga.
Menning Mest lesið Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Lífið „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Lífið Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Lífið Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Lífið Charli xcx gifti sig Lífið Fréttatía vikunnar: Eldgos, heimsókn Ursulu og frægur gítar Lífið Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Lífið Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Lífið „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Lífið Fleiri fréttir Charli xcx gifti sig „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Fréttatía vikunnar: Eldgos, heimsókn Ursulu og frægur gítar Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Bragason leikur Zeldu prinsessu Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Ótrúleg upplifun að vera í algjöru myrkri á tónleikum Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Coldplay kom óvart upp um framhjáhald forstjórans Útilokar fimmta hjónabandið: „Ég held ég sé búinn með það“ Sýnishorn úr nýjustu mynd Hlyns Pálmasonar Pete Davidson að verða pabbi: „Nú vita allir að við sváfum saman“ Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Connie Francis er látin „Maður þarf alltaf að hafa augun opin“ „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Birta og Króli eiga von á dreng Sumarlegt og ofurhollt kínóasalat að hætti Jönu Emma Watson svipt ökuleyfinu Yngsti gusumeistari landsins Sjarmerandi raðhús í 105 Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Óútgefinni tónlist Beyoncé stolið úr bíl danshöfundar „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ Sjá meira