Loksins fullkomið fangelsi 10. maí 2006 19:16
Meðal þess sem gert verður til að taka á fíkniefnavanda í fangelsum, verður að koma upp meðferðardeild, þannig að spurn eftir fíkniefnum minnki. Fangelsismálastjóri vonast til að áratugalangri byggingasögu nýs og fullkomins fangelsis, ljúki fljótlega. Árið 1960 var gerð skýrsla að beiðni dómsmálaráðuneytisins um að koma fangelsismálum í nútímalegt horf hér á landi. Þar var gert ráð fyrir deildaskiptu fangelsi og árið eftir samþykkti Alþingi lög um ríkisfangelsi á þeim hugmyndum. Þrátt fyrir þann langa tíma sem liðinn er, bólar ekkert á fangelsinu. Reyndar var byrjað á því á Tunguhálsi fyrir rúmum 30 árum, en síðan ekkert meir. Til að mæta þörfinni hafa menn byggt við á Litla Hrauni. Fangelsismálastjóri er hins vegar bjartsýnn á að nú sjái fyrir endann á sögunni endalausu og að nútímalegt fangelsi rísi á Hólmsheiði áður en þessi áratugur er liðinn. Hann vonar að fjárveitingavaldið sýni málinu skilning. Eitt af því sem oft ber á góma þegar fanga og fangelsi eru til umfjöllunar, er ónóg sálgæsla í fangelsum og ofnotkun á fíkniefnum. Því vaknar sú spurning hvort ekki þurfi að setja fanga í meðferð þannig að spurnin eftir fíkniefnum í fangelsum minnki. Valtýr Sigurðsson fangelsismálastjóri segir að fangar séu oft í mjög slæmu ástandi vegna fíkniefnaneyslu þegar þeir koma til afplánunar, en að í nýja fangelsinu verði gert ráð fyrir afeitrun og meðferð, þannig að hægt verði að taka á vandanum með þeim hætti.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira