Hátíðahöld víða um land í tilefni sumarkomu 20. apríl 2006 12:30
Ætla má að brúnin sé farin að lyftast á flestum landsmönnum því sumartíð með blóm í haga er framundan. Fyrsti dagur sumars er einmitt í dag en vetur og sumar frusu saman í nótt sem sagt er að boði hlýtt sumar. Sumardagurinn fyrsti verður haldinn hátíðlegur víða um land í dag, þar á meðal í flestöllum hverfum Reykjavíkurborgar. Klukkan ellefu hófst árleg skátamessa í Hallgrímskirkju, á milli klukkan tíu og tólf fór fram fjölskylduskemmtun í og við Vesturbæjarlaugina, í Grafarvoginum var opið hús í frístundaheimilunum í skólum hverfisins fram að hádegi og í Fólkvangi á Kjalarnesi er skipulögð hátíðardagskrá í dag sem hófst klukkan ellefu. Annars staðar hefjast hátíðahöldin nú eftir hádegið, þ.á.m. vorhátíð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum sem hefst klukkan eitt, og þær fjölmörgu skrúðgöngur sem skipulagðar eru í tilefni dagsins. Klukkan korter í eitt hefst skrúðganga í Grafarvogi en lagt verður af stað frá Spönginni. Klukkan eitt verður farið í skrúðgöngu frá Þinni verslun í Seljahverfi í Breiðholti, og klukkan korter yfir eitt verður lagt af stað í skrúðgöngu frá Árbæjarkirkju og gengið að verslunarkjarnanum Ásnum. Klukkan hálf tvö verður svo lagt af stað í tvær skrúðgöngur í borginni: önnur frá Melaskóla vestur í bæ og hin frá Fella- og Hólakirkju í Breiðholti. Í Kópavogi stendur Skátafélagið Kópar fyrir skrúðgöngu frá Digraneskirkju klukkan hálf tvö og hátíðahöldum í Smáranum á eftir. Í Garðabæ verður farið í skrúðgöngu frá Vídalínskirkju klukkan tvö, og í Hafnarfirði verður gengið frá Víðistaðakirkju þar sem lagt verður í hann klukkan eitt, og svo verða hátíðahöld á Thorsplani. Á Akureyri verða meðal annars hátíðahöld á safnasvæði Minjasafnins milli klukkan þrjú og fimm og á Ísafirði hófst skátamessa í Ísafjarðarkirkju klukkan tíu og að því loknu var ætlunin að ganga fylktu liði um bæinn í tilefni komu sumarsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira