Erlent

Rice og Ban Ki-Moon funduðu í Seoul

Condoleezza Rice fundaði í morgun með Ban Ki Moon, utanríkisráðherra Suður-Kóreu og verðandi framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Á sameiginlegum blaðamannafundi fullvissaði Rice Suður-Kóreumenn um að Bandaríkjamenn muni styðja við varnir Suður-Kóreu. Hún sagði að samband Suður-Kóreumanna og Bandaríkjamanna "gæti ekki verið sterkara".

Rice óskaði Ban Ki-Moon einnig til hamingju með kosninguna til framkvæmdastjóra og sagði að Bandaríkjamenn myndu styðja hann sem framkvæmdastjóra og vinna með honum á alla mögulega vegu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×