Tónlistarmenn sækja fram 13. desember 2006 17:15 Máni Svavarsson tekur við viðurkenningu fyrir árangur á erlendum vettvangi síðustu daga úr hendi jakobs magnússonar í gær. jakob minnti á að ætíð gætu menn treyst á hjálp mána til góðra verka. MYND/Hörður
Forystusveit íslenskra tónlistarmanna kallar eftir hugmyndum um heiti á hátíðisdegi sem helgaður verði íslenskri tónlist. Þeir vilja hefja til vegs íslenskt tónlistarsumar og nýta þessi tímamörk til frekari sóknar íslenskra tónlistarmanna heima og erlendis. Þetta kom fram í hádegishófi sem Samtónn, heildarsamtök þeirra félaga sem standa innan vébanda tónlistarinnar á Íslandi, á Hótel Borg í gær. Þar var tilkynnt um stofnun sjóðs á vegum 365 miðla og Stefs sem tekur til starfa á næsta ári og verður árlega veitt úr honum 6 milljónum króna til styrktar tónsköpun. Skálaræður einkenndu samkomuna: menntamálaráðherra flutti ræðu og þakkaði hlý orð í greinum forkólfa tónlistarmanna þá um morguninn þar sem ríkisstjórn voru þökkuð vel unnin störf í þágu tónlistar í landinu: lægra stig virðisaukaskatts og fleira. Jakob Magnússon minnti samkomuna á að í upphafi var orðið, en orðið væri tíðni og nú leiddu vísindamenn að því rökum að innsti kjarni lífsins væri tíðni. Hann sagði á þriðja hundrað diska líta dagsins ljós á ári og á þeim færu á þriðja þúsund tónverk. Vildi Samtónn brýna karla og konur að gera veg tónlistar sem mestan. Rétt eins og íslensk tunga hefði sinn hátíðisdag ár hvert vildu menn finna hátíðisdag íslenskrar tónlistar – helst að hausti. Var þá Máni Svavarsson heiðraður fyrir glæsilega framgöngu á erlendum mörkuðum með tónlist sinni við Latabæ, en lag hans situr nú í fjórða sæti breska smáskífulistans og hefur selst í yfir 100 þúsund eintökum. Tilkynnt var um stofnun nýs sjóðs með framlagi Stefs og 365 miðla og undirritað samkomulag þar um af þeim Kjartani Ólafssyni, formanni Tónskáldafélags Íslands, og Ara Edwald, forstjóra 365 miðla. Bætist sá sjóður við Tónskáldasjóð Ríkisútvarpsins og Rásar 2. Öllum þessum sjóðum er ætlað að styrkja nýsköpun tónlistarmanna. Páll Magnússon útvarpsstjóri minntist framlags Ríkisútvarpsins til tónlistarlífs í landinu og áréttaði framlag Rásar 2 í útrás íslenskrar tónlistar: net evrópskra útvarpsstöðva dreifði Rás 2 tónleikum: 11 útvarpsstöðvar tækju á móti tónleikum Mugisons og 13 á móti tónleikum Sigur Rósar. Ekki vildi hann gera upp á milli stöðva á sinni ábyrgð og taldi Sjónvarpið sinna tónlist af miklum krafti bæði með dagskrárþáttum og flutningi tónlistar í Kastljósi. Að lokum bað hann samtök tónlistarmanna að ganga til þess verks að endurskoða samninga um flutning eldra efnis í fórum útvarpsins: Opnum gullkistuna, gildandi samningar eru barn síns tíma, sagði Páll og hét að gera nýja samninga við tónlistarmenn áður en nýr dagur tónlistarinnar rynni öðru sinni. Brostu tónlistarmenn þá breitt í salnum og hugsuðu sitt. Í fleiri skálaræðum stungu menn upp á liðnum tónlistarmönnum sem kenna mætti daginn við: Bjarna Böðvarsson og Svavar Gests, 12. september og Sigfús Halldórsson. Ellý Vilhjálms reyndist vera fædd 28. desember svo ekki dugar sá dagur nema sem skiladagur fyrir diska jólanna. En nógir eru merkismenn sem lagt hafa líf sitt í tónlist á liðinni öld. Það er hugur í tónlistarmönnum: lækkun virðisaukaskatts til samræmis við virðisaukaskatt á bókum hefur víða stóraukið sölu útgefinnar tónlistar á diskum. Geirinn sér aukin sóknarfæri í útflutningsmiðstöð tónlistar, styrktarsjóðum Reykjavíkurborgar og Flugleiða fyrir nýgilda og sígilda tónlist og fleiri stoðum sem skotið er undir tónlistarlíf „okkar stórhuga þjóðar“ eins og Jakob orðaði það.
Mest lesið Forðast drama eins og heitan eldinn Lífið Myndaveisla: Ekkert gefið eftir í forsetafögnuði ísdrottningarinnar Lífið Elín Metta og Sigurður eiga von á barni Lífið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Forsetaáskorunin: Höfuðborgin ætti að vera í góða veðrinu fyrir norðan eða austan Lífið Fyrsti takóstaðurinn sem fær Michelin-stjörnu Matur Steldu stílnum af konunum í forsetaframboði Tíska og hönnun Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið Fleiri fréttir Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks „Þægileg blanda af von og trega“ Kom fram sem stórstjarna „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn „Fer ekki á milli mála að ég er að syngja um stráka“ Fögnuðu íslenskri tónlist við fjöruga opnun Seldi upp á útgáfutónleika án útgáfu „Það má segja að þetta sé í raun sorg og uppgjör“ Kom öllum að óvörum með fleiri lögum í nótt Sest við flygilinn og setur íslenska tónlist í nýjan búning Biðst afsökunar á brösuglegum Coachella-flutningi „Eina sem maður getur virkilega bætt í lífinu er maður sjálfur“ „Ég hef aldrei fylgt reglunum“ Uppselt í þriðja sinn á augabragði Íslandsvinurinn Yung Lean setur stefnuna á risatónleika í Hörpu Inga Sæland með sumarsmell í vasanum Fullur tilhlökkunar fyrir nýjum kafla Nick Cave til Íslands Emelíana Lillý úr FNV vann Söngkeppni framhaldsskólanna Tók símtalið á pabba fyrir Herbert Sjá meira