Lækkun matvöruverðs í sjónmáli 4. október 2006 06:56 Forsætisráðherra tilkynnti í stefnuræðu sinni tillögur til lækkunar matvöruverðs. MYND/SJÓ
Verið er að leggja lokahönd á tillögur sem leiða til verulegrar lækkunar á matvælaverði þannig að verðið verði sambærilegt við það sem gerist á Norðurlöndunum. . Þetta sagði forsætisráðherra í stefnuræðu sinni á Alþingi í gærkvöldi. Tillögurnar verða kynntar á næstu dögum. Geir H. Haarde sagði að vegna traustra stöðu ríkissjóðs hefði skapast svigrúm til lækkunar matarverðs. Þrátt fyrir að forsætisráðherra hafi ekki útlistað nánar hvenær tillögurnar verða kynntar. sagði Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, þess ekki langt að bíða. Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, lagði áherslu á að breytingarnar yrðu til hagsbóta fyrir alla þjóðina. Geir Haarde sagði aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að sporna við þenslu vera að skila árangri og því óhætt að fella úr gildi fyrri ákvörðun um að setja ekki af stað ný útboð á framkvæmdum. „Þar með verður haldið áfram með þær samgöngubætur, sem hafa verið undirbúnar að undanförnu sem og aðrar framkvæmdir," sagði Geir. Jafnframt upplýsti hann að ríkisstjórnin myndi leggja til við Alþingi að þegar í stað yrði ráðist í sérstakt átak til úrbóta á umferðaræðum út frá Reykjavík, þar sem orðið hafa mörg alvarleg slys á undanförnum árum. Í ræðunni stiklaði Geir á stóru. Hann rakti nýjungar á vettvangi alþjóðamála, fjallaði um nýlegan samning við eldri borgara og aukna þátttöku útlendinga í atvinnumálum. Hann staldraði nokkuð við efnahagsmálin og stöðu þjóðarbúsins og sagði óumdeilt að skattalækkanir hefðu skilað sér ríkulega til heimilanna auk þess sem kaupmáttur hefði vaxið allt kjörtímabilið. Um umhverfismál sagði Geir ríkisstjórnina sem fyrr myndu leggja áherslu á umhverfisvernd, jafnframt sem hann sagði að í sínum huga væri sjálfsagt að þjóðin hagnýtti sér auðlindir sínar. Þá boðaði hann frumvarp um heilbrigðisþjónustu þar sem styrktar verða heimildir til að fela öðrum en opinbera heilbrigðiskerfinu að annast heilbrigðisþjónustu. Geir fór einnig yfir nýgerðan varnarsamning við Bandaríkjamenn og kom fram í máli hans að varnarþáttur samningsins væri ekki frágenginn. „Munu ríkin hafa náið pólitískt samráð um frekari útfærslu hins nýja samstarfs," sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í sinni fyrstu stefnuræðu á Alþingi.
Fréttir Mest lesið Íslenskur maður lést í Úkraínu Innlent Eldur við flugvöll á Grænlandi Erlent „Miður að bensínhákum sé umbunað“ Innlent Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Innlent Selenskí skipar nýjan starfsmannastjóra í kjölfar spillingarmáls Erlent Banaslys á Hvolsvelli Innlent Sprenging eftir að gestir opnuðu út Erlent Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Innlent Réttindalaus og keyrði á kyrrstæðan lögreglubíl Innlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Fleiri fréttir „Miður að bensínhákum sé umbunað“ Íslenskur maður lést í Úkraínu Nýársbarnið á Suðurlandi býr á Eyrarbakka Réttindalaus og keyrði á kyrrstæðan lögreglubíl Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Verðlækkanir á bensíni og áramótaheit landsmanna 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga Fjögur vilja tvö efstu hjá Viðreisn Kristín vill fyrsta sætið Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Þremur þjófum vísað úr landi Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Hlutfall fínasta svifryksins áberandi hátt á nýársnótt Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Þurfi að sannfæra flokkinn Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Sjá meira