Önnur úthlutun CIA 4. október 2006 08:00 Ólafur Árni Ólafsson myndlistarmaður Fær styrk til vinnustofudvalar í Berlín. MYND/Pjetur
Fagnefnd Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar hefur úthlutað styrkjum í síðari styrkjalotu ársins. CIA.IS styrkir íslenska myndlistarmenn til starfa og sýningarhalds erlendis en á árinu hafa slíkir styrkir hlotnast fjörutíu listamönnum. Í fagnefnd Kynningarmiðstöðvarinnar sitja Dr. Christian Schoen, forstöðumaður Kynningarmiðstöðvarinnar og formaður nefndarinnar, Helgi Þorgils Friðjónsson, myndlistarmaður og fulltrúi SÍM, og Hafþór Yngvason, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur. Gestir nefndarinnar að þessu sinni voru listfræðingarnir Laufey Helgadóttir og Jón Proppé. Miðstöðinni bárust 24 umsóknir að þessu sinni og voru 7 styrkir veittir í 3 flokkum. Ferða- og dvalarstyrk að upphæð 200.000 hlaut Ólafur Árni Ólafsson vegna dvalar í vinnustofunum Kuenstlerhaus Bethanien, í Berlín í Þýskalandi. Ólafi Árna hefur verið boðin dvöl í Kuenstlerhaus Bethanien, einni af stærstu og virtustu alþjóðlegu vinnustofum sinnar tegundar í Evrópu. Ólafur Árni er búsettur í Amsterdam ásamt konu sinni Libiu Peres de Siles de Castro, en þau hafa starfað saman í myndlist síðastliðin tíu ár. Útgáfustyrk að upphæð 200.000 kr. hlutu annars vegar ljósmyndarinn Spessi vegna útgáfu ljósmyndabókarinnar „Locations“, Spessi hefur tekið myndirnar í bókina víða á Íslandi þar sem manngert umhverfi blandast náttúrunni. Spessi starfar sem ljósmyndari og myndlistarmaður hér á landi og erlendis. Hins vegar Sequences-hátíðin vegna útgáfu DVD með skrásetningum frá viðburðum hátíðarinnar. Sequences-hátíðin er alþjóðleg myndlistarhátíð með áherslu á tímatengda miðla sem haldin verður í Reykjavík 13.-28. október næstkomandi. Eftir hátíðina er ætlunin að gefa út DVD disk með upplýsingum um hátíðina til dreifingar erlendis. Verkefnastyrki að upphæð 200.000 hlutu Finnbogi Pétursson og Rúrí. Finnbogi hlaut þau vegna hljóðinnsetningar í Land Foundation í Chiang Mai í Taílandi. Finnbogi mun gera hljóð-innsetningu, taka þátt í verkefnavinnu og halda fyrirlestra í listaháskólanum í Chiang Mai í Taílandi og Rúrí vegna þátttöku í Paris Photo 2006 þar sem hún verður í nóvembermánuði. Verkefnastyrki að upphæð 100.000 hlutu Steingrímur Eyfjörð vegna þátttöku sinnar í „Dreamlands Burn“, norrænni nútímalistasýningu í Kunsthalle Budapest í Ungverjalandi og Kling & bang gallerí sem fær styrk vegna þátttöku í Art Brussels Contemporary listamessunni, þar sem kynntir verða ungir upprennandi listamenn.
Menning Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni Lífið Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Fleiri fréttir Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins Sjá meira