Lífið

Öll rúm full og tjaldað í görðum

Þeir Þröstur Árnason og Ásgrímur Ingi Arngrímsson voru í óða önn að koma tónleikahúsinu Bræðslunni í stand um helgina. Á annað þúsund gestir verð á tónleikum Belle & Sebastian á laugardagskvöldið.
Þeir Þröstur Árnason og Ásgrímur Ingi Arngrímsson voru í óða önn að koma tónleikahúsinu Bræðslunni í stand um helgina. Á annað þúsund gestir verð á tónleikum Belle & Sebastian á laugardagskvöldið. MYND/Heiða

„Það búa 150 manns hér á svæðinu og við búumst við að það verði á annað þúsund manns um næstu helgi þegar allt er talið. Okkur líst bara vel á að fá alla þessa gesti, þetta verður mjög skemmtilegt," segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, sem sér um skipulagningu tónleika skosku hljómsveitarinnar Belle & Sebastian á Borgarfirði eystri um næstu helgi.

Tónleikarnir verða haldnir í Bræðslunni sem er gömul skemma sem hefur verið gerð upp. „Hún hafði verið notuð sem ruslakompa í áratugi en við breyttum henni í tónleikahöll í fyrrasumar," segir Áskell Heiðar og vísar þar til tónleika Emilíönu Torrini í fyrrasumar. Hún leikur einmitt með Belle & Sebastian á tónleikunum á laugardag. Miðar á tónleikana seldust upp fyrir nokkrum vikum, jafnvel þó endurbætur hafi verið gerðar á Bræðslunni og fleiri komist þar inn en í fyrra.

Áskell Heiðar segir að undirbúningur fyrir tónleikana hafi staðið síðustu sex mánuðina. Á meðan Grímur Atlason hafi tekið að sér að koma listamönnunum til Íslands hafi hann séð um að koma öllum gestum fyrir. „Það verður hvert rúm vel nýtt og tjaldað í öllum görðum," segir Áskell.

Hefð virðist vera að myndast fyrir tónleikahaldi á Borgarfirði eystri og segir Áskell að bæjarbúar séu þegar vissir um hvern þeir vilja fá þangað næsta sumar. „Ætli við reynum ekki að fá hann Magna okkar á næsta ári, með eða án Supernova," segir Áskell en svo skemmtilega vill til að Magni er bróðir hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.