Opna fyrstu vespuleigu landsins 20. júlí 2006 16:00 Nýjung í ferðaþjónustu Vespuleigan á Stokkseyri er sú eina sinnar tegundar á landinu og taka hjónin Jón og Elsa sig vel út á hjólunum. Þau hafa meðal annars ferðast á slíkum farartækjum um Kanaríeyjar. MYND/Pjetur
Fyrir nokkrum árum leigðum við vespu á Kanarí og keyrðum þá hringinn um eyjuna og þótti mjög gaman. Þannig má eiginlega segja að þessi hugmynd sé til komin, segir Jón Jónsson sem opnað hefur vespuleigu á Stokkseyri ásamt eiginkonu sinni Elsu Kolbrúnu Gunnþórsdóttur en hjónin hafa í sjö ár séð um rekstur Shellskálans á Stokkseyri og í tvö ár rekstur Shellskálans á Þorlákshöfn. Margir Íslendingar hafa, eins og þau hjónin, nýtt sér vespur á ferðalögum erlendis en Jón segir að þær henti ekki síður á Íslandi, ekki síst á Suðurlandi þar sem mikið er um flatlendi. Þetta er mjög skemmtilegur ferðamáti og einfalt að keyra. Vespurnar eru án gíra og því er bara gefið í og þannig er mjög auðvelt fyrir alla að keyra þær. Þetta eru ekki mjög öflug tæki en komast þó upp í 70 km hraða. Svo er líka alveg hægt að keyra vespurnar þó vegirnir séu blautir því menn eru með fæturnar á bak við hlíf á meðan þú færð gusurnar beint á lappirnar þegar þú ert á mótorhjóli, segir Jón sem býst við því að hinn íslenski ferðamaður verði duglegur við að nýta sér þennan nýja ferðamöguleika. Til að byrja munu hjónin bjóða upp á fimm 50cc vespur af gerðinni Zip sem er amerískt merki og eru þær leigðar í lágmark tvær klukkustundir í senn. Það er afar stutt í ýmsa sögufræga staði sem gaman er að keyra til og skoða. Það er til dæmis hægt að fara í Gaulverjabæ og upp með Þjórsá, niður á Selfoss og til baka. Við ætlum að búa til gróft kort af svæðinu þar sem merktir eru inn á áhugaverðir staðir sem gaman er að rúnta til.
Menning Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Lífið Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Tónlist Emily in Paris-stjarna látin Lífið Fleiri fréttir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Sjá meira