Lífið

Fabúla á Rósenberg

Tónlistarmaðurinn Fabúla Leikur ásamt hljómsveit á Rósenberg í kvöld.
Tónlistarmaðurinn Fabúla Leikur ásamt hljómsveit á Rósenberg í kvöld.

Söngkonan og lagasmiðurinn Fabúla heldur tónleika á Rósenberg í kvöld ásamt Birki Rafni Gíslasyni, Jökli Jörgenssen og Einari Scheving. Þar munu þau leika lög af væntanlegri plötu, en von er á þriðju plötu Fabúlu í næsta mánuði. Fimm ár eru síðan síðasta plata Fabúlu, Kossafar á ilinni, kom út.

Platan hefur ekki enn fengið nafn en nú stendur yfir hljóðblöndun á henni en um hana sér Axel Árnason. Að sögn Fabúlu hefur það ferli verið bæði skemmtilegt og skapandi. Við eigum erfitt með að hætta og höfum potað í eitt og annað svona á lokasprettinum. Axel hefur meira að segja bæði ljáð okkur rödd sína og húð.

Að loknum tónleikum mun hljómsveitin taka sér nokkurra daga frí, á meðan platan er í framleiðslu, en hún er gefin út hjá Dennis Records. Lagið Pink Say er þegar farið að heyrast á öldum ljósvakans en heyra má fleiri lög á www.myspace.com/fabulaband.

Tónleikarnir hefjast kl. 22.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.