Akureyri undirlögð af Django 19. júlí 2006 13:45 Andreas Öberg gítarleikari Skrautfjöður í djasshatt Akureyringa á Djangodjasshátíðinni.
Djasstónlist kennd við belgíska gítarsnillinginn Django Reinhardt verður sífellt vinsælli um allan heim. Á morgun hefst hátíð norðan heiða þar sem arfleifð þessa einstaka manns er haldið á lofti. Ólafur Haukur Árnason er einn af skipuleggjendum hátíðarinnar sem nú er haldin í fimmta sinn en hann er jafnframt félagi í hljómsveitinni Hrafnasparki sem sérhæfir sig í djangodjasstónlist. Meginuppistaðan á þessari hátíð er sígaunadjass sem er kenndur við Django Reinhardt en hann var uppi á fyrri hluta síðustu aldar, útskýrir Ólafur Haukur. Á stríðsárunum varð ameríski djassinn sífellt vinsælli í Evrópu og þá fóru sígaunar að spila hann í eigin útsetningum og með órafmögnuðum hljóðfærum, einkum á gítar og fiðlu. Django Reinhardt var frumkvöðull í þessari músík en hans sérstaki hljómur var þó ekki kominn til af góðu því á unga aldri lenti hann í eldsvoða sem skaðaði vinstri hendi hans verulega. Hann fór að spila aftur á gítar sem nokkurs konar endurhæfingu en hann gat aðeins notað tvo eða þrjá fingur á vinstri hendinni og þess vegna breyttust gripin. Þá varð til þessi sérstaki blær yfir hljómum og lagalínum sem sígaunarnir hafa haldið áfram að nota en stíllinn mótaðist að vissu leyti út frá fötlun Djangos, segir Ólafur Haukur. Á hátíðinni verður margt góðra gesta hvaðanæva að úr heiminum. Nágrannar okkar í Skandinavíu hafa einnig fagnað djangomúsíkinni og frá Noregi ferðast ungstirnið Ole Kvernberg sem að sögn Ólafs Hauks er ekta djangofiðluleikari. Hann hefur verið að slá í gegn í Evrópu, einkum meðal unnenda djangotónlistar, útskýrir hann. Frá Svíþjóð kemur gítarsnillingurinn Andreas Öberg sem einnig heimsótti hátíðina í fyrra og ferðaðist meðal annars um landið ásamt tríóinu Hrafnasparki og var vel tekið af íslenskum áheyrendum. Öberg leikur aftur með tríóinu og fleiri gestum, svo sem Birni Thoroddsen og þýsk-íslenska bandinu Blue Brasil sem leikur suður-ameríska tónlist en forsprakki þess er harmónikuleikarinn og Bolvíkingurinn Hrólfur Vagnsson. Ólafur Haukur segir að vegur þessarar tónlistar fari æ vaxandi, einkum í Bandaríkjunum og margir gestir komi langt að til þess að hlýða á snillingana. Það kemur líka talsvert af tónlistarmönnum til að njóta hátíðarinnar enda er hún skemmtilegur pakki fyrir þá. Þeir geta tekið þátt í þriggja daga námskeiði og hlýtt á tónleika á hverju kvöldi. Svo erum menn að hittast og spila saman. Það er stemning alla helgina á Kaffi Karolínu í Listagilinu sem verður eins konar bækistöð á meðan á hátíðinni stendur. Þangað koma menn og taka djammsessjónir á daginn og kvöldin og allir eru velkomnir að spila með. Að sögn Ólafs Hauks hefur djangodjassmúsík ekki verið gefin út á Íslandi til þessa en tríóið Hrafnaspark stefnir á að gefa út plötu með hreinræktaðri djangomúsík fyrir næstu jól. Því geta þeir sem missa af djangolestinni um helgina hugsað sér gott til glóðarinnar.
Menning Mest lesið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið Jólaboð Evu: Kalkúnabringur með öllu tilheyrandi Matur Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Laufey á landinu Lífið Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Lífið Fleiri fréttir Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Sjá meira