Það verður hálf tómlegt í kotinu þegar Sesar fer 19. júlí 2006 08:00 Bryndís og Sesar Sendiherrafrúin fyrrverandi hefur notið þess að hafa hund dótturdóttur sinnar á heimilinu, jafnvel þó hún verði abbó þegar Sesar tekur ástfóstri við Jón Baldvin. MYND/Heiða
Það hefur verið nóg að gera hjá Bryndísi Schram að undanförnu því hún hefur haft hund dótturdóttur sinnar í fóstri. Bryndís segist hafa notið þess að hafa hundinn hjá sér og viðurkennir að það verði jafnvel hálftómlegt í kotinu hjá þeim Jóni Baldvin þegar hundurinn fer. „Hann heitir Sesar. Eins og þú veist, þá þýðir orðið Sesar keisari og Sesar er réttnefndur keisari. Hann trúir því allavega sjálfur, sem skiptir auðvitað mestu máli í lífi hvers og eins. Þú ert það sem þú trúir að þú sért, ekki satt? Hann trúir því til dæmis að hann sé svo stór og sterkur að allir hljóti að óttast hann, jafnvel stór óargadýr, villihundar og stóðhestar, sem stundum eiga leið hér fram hjá. Þá hamast hann á þeim þangað til þeir hrökklast frá, líklega frekar af því að þeir eru orðnir þreyttir í eyrunum heldur en af ótta við þetta kríli,“ segir Bryndís og ber hundinum góða söguna. „Betri en besta barn og lítill vandi að fóstra hann,“ segir hún. Sesar er átta mánaða Chihuahua en þeir hafa einmitt verið afar vinsælir meðal stórstjarna úti í heimi. Sesar er aftur á móti ættaður frá Dalsmynni í Kjós, en búsettur að Bifröst í Borgarfirði. „Dótturdóttir mín, Marta, á Sesar en ég var beðin um að gæta hans á meðan þær mæðgur, hún og Snæfríður, eru í burtu. Ég hafði nú alltaf í huga að fá hund á heimilið þegar við kæmum heim úr útlegðinni, og hafði þá hugsað mér íslenskan fjárhund með sperrt eyru og fagurhringaða rófu, ef það væri hægt að venja hann af sífelldu gelti. Fannst einhvern veginn að slíkt hæfði sveitafólki. Ég var jafnvel með í huga að hafa akurhænu í garðinum, og að minnsta kosti einn eða tvo hesta,“ segir Bryndís og viðurkennir um leið að öll þessi dýr hefðu þýtt það að hún og Jón Baldvin kæmust aldrei af bæ. „Engu að síður hefur þetta verið skemmtilegur tími. Ég er að vísu svolítið abbó því að Sesar hefur tekið algeru ástfóstri við Jón Baldvin. Hann vill helst sitja í kjöltu hans þegar hann er ekki að sinna skyldustörfum við garðshliðið. Skýringin er þó líklega sú að ég skamma hann miskunnarlaust þegar hann leyfir sér að pissa á stofugólfið, sem hann reyndar gerir bara í neyð og örsjaldan núorðið. Hann vaktar mig nefnilega,“ segir Bryndís sem veit að óðum styttist í að samvistum hennar og Sesars fækki. „Nú fer að styttast í að hann snúi aftur upp í Borgarfjörð og þá er spurning hvort það verður ekki hálftómlegt án hans.“
Menning Mest lesið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Unnur Borg og Gugga saman í paradís Lífið Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira