Innlent

Einstæðir karlar vaxandi hópur

Fátækt og einangrun er vaxandi vandamál á Íslandi, að mati viðmælenda í nýrri athugun Rauða krossins. Aldraðir, fatlaðir, öryrkjar og einstæðar mæður eru sem fyrr mesti áhættuhópurinn, en einstæðir karlmenn og innflytjendur eru vaxandi hópur og jafnframt þeir sem erfiðast er að hjálpa.

Rauði Krossinn gengst fyrir málþingi á sunnudag um fátækt, einangrun og mismunun á Íslandi. Unnin hefur verið viðtalsskýrsla við það fólk sem helst sinnir þessum vandamálum í starfi og leiðir sú skýrsla í ljós að vandinn hafi vaxið í miðju góðærinu, fleiri hópar en áður eigi undir högg að sækja. Aldraðir, öryrkjar og einstæðar mæður eru sem fyrr, mesti áhættuhópurinn. Þá hafa innflytjendur einnig bæst á listann sem og einstæðir karlmenn. Framkvæmdastjóri Rauða Krossins segir að útlendingar á Íslandi hafi verið mun færri fyrir tíu árum en þeir eru í dag. Þess vegna séu mun fleiri sem leiti sér hjálpar í dag. Hvað karlana varðar segir hann hugsanlega að þeim hafi fundist erfiðara áður að leita hjálpar og það sé skýring á að þeim hafi fjölgað undanfarin ár. Hann segir það ólíðandi að í því góðæri sem hér er, sé ástandið jafn slæmt og raun ber vitni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×