Sýnir ógöngur málsins 1. júlí 2006 07:45 "
Þessi niðurstaða sýnir í hvers konar ógöngum saksóknari er með málið og niðurstaðan er auðvitað jákvæðar fréttir," segir Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, um niðurstöðu héraðsdóms í Baugsmálinu í gær. Hann bendir á að þetta sé í annað sinn sem þessum fyrsta lið sé vísað frá. Jón Ásgeir segir að þarna hafi verið um viðskipti að ræða þar sem lá fyrir hvað Baugur væri að kaupa. "Við keyptum verslunarkeðju og borguðum það sem við áttum að borga og fengum það sem við áttum að fá. Síðan fer saksóknari að blanda einhverjum fasteignum inn í þetta sem komu þessum viðskiptum ekkert við og reynir að skjóta á eitthvert verð á þeim, án þess að teikna upp hvernig þetta er saman sett." Jón Ásgeir segist alltaf hafa búist við því að þessi ákæruliður félli sér í hag, þó að honum yrði ekki vísað frá dómi. "Þetta sýnir bara hvernig málatilbúnaðurinn er. Það er með ólíkindum að þessum lið skuli vísað frá í annað sinn." Jón Ásgeir segist ekki hafa áhyggjur af framhaldi málsins. "Það hefur enginn tapað neinu og ég sé ekkert í þessu máli. Við munum sanna sakleysi okkar í þeim þáttum sem eftir eru í málinu. Það er hins vegar þungt í manni eftir þetta allt og það er þungt í þjóðinni. Fólk vill ekki að það sé hægt að fara svona með þegnana í landinu." Jón Ásgeir segir að það sýni að embættismannakerfið sé afmyndað, að málinu sé sífellt haldið áfram. Hann segir engan vafa á því að þetta mál sé af pólitískum rótum. "Það er bara sannað með tölvupóstunum sem Fréttablaðið birti. Síðan hefur Björn Bjarnason tekið við kyndlinum og haldið málinu heitu inni í embættismannakerfinu. Síðan hafa ákveðnir embættismenn lagt sjálfa sig að veði í málinu og með ólíkindum að þeir skyldu ekki fara þegar málinu var vísað frá dómi á sínum tíma." Hann segir þá niðurstöðu hafa verið skömm fyrir embætti ríkislögreglustjóra.
Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira