Gísli Súrsson laðar að ferðamenn 18. júlí 2006 09:47
Gísla saga Súrssonar laðar erlenda ferðamenn af og til á Vestfirði. Þeir vilja sjá Einhamar þar sem kappinn barðist með iðrin úti. Vestfirðingar sjá þarna tækifæri til að byggja upp sögutengda ferðaþjónustu. Nú falla vötn öll til Dýrafjarðar, er ein frægasta setning Gísla sögu Súrssonar en hana sagði Vésteinn fóstbróðir hans og mágur á Gemlufallsheiði þegar ekki varð aftur snúið. Meginsögusviðið er þó Haukadalur en þar byggði Gísli bæ sinn, undir hæsta fjalli Vestfjarða, Kaldbaki. Þarna er sagan enn í dag ljóslifandi út um allt. Í fjöruborðinu er seftjörnin fræga þar sem Gísli og félagar iðkuðu ísknattleik að vetri, og tókust hart á. Í Haukadal urðu mannvíg sem leiddu til þess að Gísli var gerður útlægur. Hann flúði í Geirþjófsfjörð, þar átti hann sér fylgsni og þar var hann loks veginn á klettinum Einhamri eftir hetjulegan bardaga með iðrin úti, sem hann girti fyrir með reipi áður enn hann rak sverðið í höfuð næsta manni og kleif niður til beltisstaðar. Þórir Örn Guðmundsson á Þingeyri, áhugamaður um Gíslasögu, segist finna fyrir miklum áhuga á Gísla Súrssyni, bæði hérlendis og erlendis. Flest íslensk börn lesi söguna í skóla og nokkur dæmi séu um að hún sé einnig kennd í skólum erlendis, svo sem í Noregi og Þýskalandi. Þessa dagana sé til dæmis bandarískur prófessor á ferð um Vestfirði til að kynna sér söguslóðir í Geirþjófsfirði og Haukadal. Þá er ekki langt síðan hópur norskra kennara gerði sér sérstaka ferð á söguslóðir Gísla.Dýrfirðingar sjá í þessu tækifæri til að fá fleira fólk í heimsókn til að efla ferðaþjónustu. Liður í því er uppbygging víkingahrings á Þingeyri, hátíðarsvæðis í fornum stíl, þar sem ætlunin er að taka á móti hópum og leyfa þeim að upplifa fornar sögur. Þar er komið útileiksvið, eldstæði, stór grillaðstaða og borð og bekkir fyrir allt að 400 manns.Það eru fleiri en Dýrfirðingar sem gætu gert sér mat úr Gísla Súrssyni því að sagan teygir sig suður á Barðaströnd og út í Breiðafjarðareyjar. Þar gerðist eitt eftirminnilegasta atriði sögunnar þegar Gísli brá sér í gervi Ingjaldsfíflsins í Hergilsey og villti þannig um fyrir óvinum sínum á flóttanum.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira