Erlent

Fimm bandarískir hermenn létust í Írak

Hermennirnir voru við eftirlit þegar óvinasveitir réðust á þá.
Hermennirnir voru við eftirlit þegar óvinasveitir réðust á þá. MYND/AP

Einn bandarískur sjóliði og fjórir bandarískir landgönguliðar létust í árás í gær í Anbar-héraði í vesturhluta Íraks. Bandaríski herinn tilkynnti þetta í morgun en ekki kom fram hvort allir fimm hefðu látist í sömu árás. Það sem af er mánuðinum hafa 95 bandarískir hermenn látist í Írak, sem er hæsta dánartíðni í 12 mánuði.

Tæpar tvær vikur eru til þingkosninga í Bandaríkjunum og hefur vaxandi ofbeldi í Írak og hækkandi dánartíðni bandarískra hermanna slæm áhrif á fylgi repúblikana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×