Erlent

400 á sjúkrahús vegna áfengiseitrunar

Oft verður mönnum misdægurt eftir drykkju en ástandið er orðið býsna slæmt í Rússlandi.
Oft verður mönnum misdægurt eftir drykkju en ástandið er orðið býsna slæmt í Rússlandi.

Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Pskov héraði í Vestur-Rússlandi þar sem 400 manns hafa verið lagðir inn á sjúkrahús síðustu þrjár vikurnar og 15 hafa látist eftir að hafa drukkið áfengi blandað lyfjum. Lyfin eru stórhættuleg í sambland við áfengi og hafa því margir fengið að kenna á eitrunaráhrifum.

Pskov er við landamærin að Lettlandi en frést hefur af sams konar áfengiseitrun í fleiri héruðum í Rússlandi. Rússar eru heimsins mestu vodkadrykkjumenn en reglulega koma upp vandamál tengd ólöglegu áfengi sem oft er blandað tréspíra eða öðrum hættulegum efnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×