Erlent

Pattstaða í kosningu til öryggisráðs S.þ.

Fimmtán sæti eru í öryggisráðinu. Fimm þeirra eru föst, fimm var kosið um núna og fimm verður kosið um á næsta ári, þegar Ísland ætlar að taka þátt í slagnum.
Fimmtán sæti eru í öryggisráðinu. Fimm þeirra eru föst, fimm var kosið um núna og fimm verður kosið um á næsta ári, þegar Ísland ætlar að taka þátt í slagnum. MYND/AP

Pattstaða er nú í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna þar sem illa gengur að fylla fimmta lausa sætið í öryggisráðinu. Eftir fjörutíu og eina umferð hefur Gvatemala dágott forskot á Venesúela með allt að 109 atkvæði gegn 72 atkvæðum. Þetta dugir hins vegar ekki til þar sem Gvatemala þarf aukinn meirihluta, tvo þriðju allra atkvæða, til að niðurstaða fáist.

Gvatemala leggur veglegan mannskap til friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna og hefur aldrei setið í öryggisráðinu en Venesúela hefur aftur á móti setið þar fjögur kjörtímabil. Lengsta pattstaða af þessu tagi var árið 1979, þegar Mexíkó náði kjöri í hundrað fimmtugustu og fimmtu atkvæðagreiðslunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×