Erlent

Víðar en í Svíþjóð sem ráðherrar borga svart

Jens Stoltenberg hefur játað að hafa greitt svört vinnulaun.
Jens Stoltenberg hefur játað að hafa greitt svört vinnulaun.

Skattahneykslið sem hefur hrjáð nýja ríkisstjórn í Svíþjóð virðist vera að smitast yfir landamærin til Noregs. Ráðherrar í norsku ríkisstjórninni viðurkenna einn af öðrum að hafa borgað barnapíum og heimilishjálpum undir borðið. Meðal þeirra sem viðurkenna þetta samkvæmt frétt á vefútgáfu Verdens Gang er forsætisráðherrann Jens Stoltenberg.

Samkvæmt könnun blaðsins viðurkenna 43 af 169 þingmönnum á stórþinginu norska að hafa annað hvort greitt einhverjum vinnulaun í svörtu eða að hafa sjálfir þegið svört laun.

Játningar norskra ráðherra og þingmanna virðast þó ekki ætla að hafa viðlíka áhrif og í Svíþjóð þar sem tveir ráðherrar sögðu af sér út af hneykslismálum á fyrstu tveimur vikunum og einn til viðbótar hefur sætt mikilli gagnrýni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×