Erlent

Vilja velja hvors kyns barnið verður

Nú geta konur pantað stráka- eða stelpufóstur eftir hentisemi. Það þarf hins vegar að sækja þjónustuna út fyrir Evrópusambandið.
Nú geta konur pantað stráka- eða stelpufóstur eftir hentisemi. Það þarf hins vegar að sækja þjónustuna út fyrir Evrópusambandið. MYND/Getty

Danskar konur eru farnar að fara til Kýpur til að gangast undir aðgerðir svo þær geti ráðið kyni væntanlegra barna sinna. Nyhedsavisen og danska útvarpið segja að aðgerðir þessar séu ólöglegar í Evrópusambandinu, og því fari konurnar til Kýpur. Þetta munu einkum vera konur sem eiga tvo til þrjá stráka eða stelpur fyrir, en vilja eitt barn af hinu kyninu.

Aðgerðirnar kosta hálfa aðra milljón íslenskra króna og þykir konum það til vinnandi til að geta ráðið kyni síðasta barnsins, eins og það er orðað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×