Erlent

Japanir og Suður-Kóreumenn funda um öryggismál

MYND/AP

Utanríkisráðherrar Japans og Suður-Kóreu hittust í morgun til þess að ákveða hvernig best sé að draga úr spennunni á svæðinu. Suður-Kóreumenn hafa varað við því að of harkalega sé tekið á nágrönnum þeirra í norðri en Japanir og Bandaríkjamenn hafa heldur mælt með strangari refsiaðgerðum.

Mikil diplómatísk spenna er nú á Kóreuskaganum þar sem leiðtogar nágrannalandanna, auk utanríkisráðherra Bandaríkjanna, reyna að gulltryggja að ekki komi til vígbúnaðarkapphlaups í kjölfar kjarnorkusprengjutilrauna Norður-Kóreumanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×