Erlent

Kínverjar segja fund með Kim Jong-il gagnlegan

MYND/AP

Háttsettur embættismaður frá Kína, sem Hu Jintao sendi til fundar við norðurkóreska leiðtogann Kim Jong-il, segir fund þeirra hafa verið gagnlegan til þess að auka skilning milli þjóðanna. Þetta kom fram á fundi Condoleezu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, með starfsbróður sínum í Kína, Li Zhaoxing.

Tang Jiaxuan, sendiboðinn sérlegi, segist hafa rætt við Kim Jong-il um mikilvægi þess að hefja milliríkjaviðræður um kjarnorkusprengjur Norður-Kóreumanna til þess að koma á stöðugleika á svæðinu á ný og forðast vígbúnaðarkapphlaup.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×