Erlent

Mótmæltu viðskiptatengslum við Norður-Kóreu

MYND/AP

Hundruð Suður-Kóreumanna mótmæltu í morgun ferðaþjónustu suðurkóreska fyrirtækisins Hyuandai Asan sem í átta ár hefur skipulagt ferðir yfir landamærin vinsæls fjallaþorps í óvinaríkinu Norður-Kóreu. Mótmælendurnir sagði fyrirtækið styrkja stjórn Kim Jung-Ils með því að dæla peningum upp í hendurnar á henni.

Á skiltum sem fólkið bar og í slagorðum sem það söng óskaði það Hyundai gjaldþrots. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er væntanleg til Seúl og er búist við að hún hvetji suðurkóreska valdamenn til að loka fyrir möguleikann á öllum slíkum viðskiptatengslum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×