Erlent

Íranar vilja ekki samanburð við Norður-Kóreu

Utanríkisráðherra Írans baðst þess í gær að stjórnvöld Evrópuríkja höguðu sér af skynsemi þegar rætt væri um kjarnorkustarfsemi Írana. Í ræðu sinni vísaði hann til kjarnorkutilrauna Norður-Kóreu, og sagði að það að bera friðsamlega kjarnorkunotkun Írana saman við kjarnorkusprengjur annarra landa benti til þess að rökhugsun Vesturveldanna væri að veikjast.

Einnig varaði utanríkisráðherrann við því að hugsanlegar efnahagsþvinganir myndu útiloka málamiðlun í pattstöðunni um kjarnorku Írana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×