Innlent

Jafnaðarmenn berjast gegn mansali

Jafnaðarmenn í Norðurlandaráði skora á Norrænu ráðherranefndina að útbúa sameiginlega norræna verkefnaáætlun í baráttunni við mansal. Jafnaðarmenn lögðu fram á þingi Norðurlandaráðs í Færeyjum í gær að lögð yrði áhersla á að mansal feli í sér alvarleg brot á mannréttindum. Vísað var í tillögunni til nokkurra aðgerða sem hægt er að grípa til, þar á meðal að styrkja alþjóðlegt samstarf lögreglu, efla fyrirbyggjandi starf í þeim löndum sem konurnar koma frá og rýmka dvalarleyfi á Norðurlöndunum fyrir fórnarlömb mansals. Sameinuðu þjóðirnar áætla að á hverju ári séu um 800.000 manns fórnarlömb mansals og er þetta sú glæpastarfsemi sem vex hve hraðast. Hagnaður mansals nemur gríðarlegum fjárhæðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×