Innlent

Edikssýru fyrir mistök hellt í klórtank sundlaugarinnar á Eskifirði

Fjórir eru illa haldnir eftir klórmengun sem varð í sundlauginni á Eskifirði í dag. 20 til 30 fengu eitrun af einhverju tagi.

Fyrsta útkall vegna eitrunarinnar barst rétt fyrir klukkan tvö í dag. Björgunarmenn voru þegar kallaðir til, meðal annars frá Fjarðarbyggð og Héraði. Þá var lögregla og sjúkralið kölluð á staðinn.

Nokkru síðar var Samhæfingarstöðin í Reykjavík virkjuð til að veita þá aðstoð sem þörf var á. Tíu slökkviliðsmenn frá höfuðborgarsvæðinu voru einnig sendir austur með búnað og súrefni og þyrlan Landhelgisgæslunnar, TF-Líf einnig.

Ráðstafanir voru gerðar til að flytja fólkið sem varð fyrir eitrun á heilsugæslustöðina á Eskifirði og til Norðfjarðar til aðhlynningar. Vitað er að fjórir eru illa haldnir og alvarlega veikir vegna eitrunar.

Að sögn eins heimamanna myndaðist öngþveiti í heilsugæslustöðinni og þegar laugin var rýmd gafst fólki ekki tími til að klæða sig heldur hélt út á götu með ekkert nema handklæði um sig.

Sunlaugin og nærliggjandi svæði var þegar rýmt, meðal annars leikskóli rétt hjá. Einnig mun hafa verið byrjað að rýma íbúðarbyggð innan sundlaugarsvæðisins.

Allt bendir til að fyrir mistök hafi edikssýru verið hellt í klórtank laugarinnar. Þegar edikssýra blandast natríum hydrochlorit lækkar sýrustig skyndilega og klórgas losnar. Klórgas er stórhættuleg eiturlofttegund og getur í ákveðnu magni verið banvæn.

Einkenni vægrar klórgaseitrunar eru sviði í lungum. Þeir íbúar Eskifjarðar sem telja sig með slík einkenni eða eiga við lungnasjúkdóma að stríða eru beðnir að hafa samband við heilsugæsluna á Eskifirði.

Yfirstjórn bæjarfélagsins sendi frá sér yfirlýsingu rétt fyrir klukkan fjögur þar sem kemur fram að slökkvilið Fjarðarbyggðar hafi komist fyrir eiturefnamengunina og að ekki sé gert ráð fyrir að rýma fleiri hús en þegar hefur verið gert.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×