Hlutfall kvenna í embættum sjálfstæðismanna í borginni 41% 23. júní 2006 19:16 Ásta Möller, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna MYND/Teitur Jónasson
Landssamband sjálfstæðiskvenna vísar ásökunum minnihlutans um að ekki sé hugað að jafnréttismálum í borginni aftur til heimahúsanna. Hlutfall kvenna í þeim embættum borgarinnar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur á að skipa er rúmlega 41%. Framsóknarflokkurinn stendur sig þó sýnu verst allra flokka. Á heimasíðu Landssambands sjálfstæðiskvenna, www.sjalfstaediskonur.is, birtast tölur um kynjahlutföll aðalmanna í nefndum, ráðum og stjórnum í Reykjavíkurborg eftir stjórnmálaflokkum. Tölurnar taka til 15 ráða og nefnda, 10 hverfisráða, stjórna fjögurra fyrirtækja á vegum borgarinnar og fjögurra annarra embætta. Í ljósi þessarar tölfræði segir Ásta Möller, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna, að ekki sé hægt að saka Sjálfstæðisflokkinn um að sniðganga jafnréttissjónarmið, eins og ætla mætti af umræðu minnihlutans. Sjálfstæðiskonur fara með rúm 41% af embættum flokksins. Þessar tölur eru frá 20. júní en enn á eftir að skipa í nokkur embætti. Samfylkingin kemur best út í þessum samanburði með konur í tæplega 46% sæta flokksins. Dagur B. Eggertsson segir þetta hluta af jafnréttisstefnu flokksins. Þessi hugsjón hafi verið til staðar lengi og því sé Reykjavíkurborg fyrirmynd annarra sveitarfélaga og einnig fyrirtækja. Þess vegna sé leiðinlegt að fáni jafnréttismála sé látinn síga. Þetta segir Dagur vera að gerast hjá nýja meirihlutanum og sjáist á því að karlar í Sjálfstæðisflokknum hafi fengið valdamestu stöðurnar í borginni. Til dæmis sé formennska í höndum sjálfstæðiskvenna í aðeins tveimur af átta nefndum. Framsóknarmenn koma áberandi verst út í tölum sjálfstæðiskvennanna, með einungis 17,1% kvenna. Þegar rætt var við Björn Inga í dag sagði hann að alltaf væri hægt að velja tölur en þegar skoðað væri heildarhlutfall í öllum stöðum innan borgarinnar, bæði aðal- og varamenn og stöður sem skipað væri í af borgarráði, væri hlutfall kvenna nær 40%. Auk þess væri ekki enn búið að ganga frá skipan í allar stöður. Landssamband sjálfstæðiskvenna gagnrýnir sérstaklega lítið hlutfall kvenna í embættum Vinstri-grænna, þar sem flokkurinn haldi á lofti kvenfrelsi og jafnréttisbaráttu. Konur eru í tæplega 36% sæta vinstri grænna eða 5 af 14.
Fréttir Innlent Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Banna búrkur og níkab Erlent Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Innlent Fleiri fréttir Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Pawel leggur frumvarp Gríms um netsölu áfengis fram á ný Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Nafnið villandi og ekki lýsandi fyrir heilkennið Annað innbrotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ Sautján voru handteknir í aðgerðum lögreglu Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Rokið, haustlitir og lauf út um allar trissur Fjöldi sjálfsvíga svipaður og fyrri ár Björn Leví telur einsýnt að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi Tilkynningar um heimilisofbeldi milli foreldra og barna tvöfaldast 350 milljóna tekjur Þingvalla í húfi vegna náttúrupassa Sjá meira