Tökum heppnina úr umferð 22. júní 2006 12:00 Lögreglan á Blönduósi við hraðamælingar.
Nú skal reyna í eitt skipti fyrir öll að binda enda á hraðakstur og taka heppnina úr umferð. Þjóðarátak VÍS í umferðarmálum hófst í dag, um leið og netsíða fyrir þjóðarsál umferðarinnar var opnuð. Í nýjum auglýsingum fyrir VÍS sem verða teknar til sýninga innan skamms er notað slagorð sem landsmenn hafa heyrt áður: Tökum heppnina úr umferð. Með því er vísað til þess að það sé ekki annað en hrein heppni ef ökumenn komast upp með hraðakstur, ölvunarakstur eða gáleysi í umferðinni. Ragnheiður Davíðsdóttir, forvarnafulltrúi VÍS, segir ótrúlegt að fólk láti sér ekki að kenningu verða að 24 manneskjur láti lífið í umferðinni að jafnaði á ári hverju. Réttu ári eftir að tveir drengir létu lífið í bílslysi sem varð vegna ofsaaksturs á Öxnadalsvegi þann 17. júní 2005, mældust 10% ökumanna á sama stað á yfir 120 kílómetra hraða á klukkustund. Á blaðamannafundi í dag var einnig opnuð netsíða þar sem fólk getur komið með ábendingar, fyrirspurnir eða rætt um málefni tengd umferðinni. Móðir annars drengsins sem lést í slysinu á Öxnadalsvegi í fyrra, opnaði síðuna, til að leggja sitt af mörkum til batnandi umferðarmenningar. Sonur hennar lét lífið vegna ofsaaksturs. Sjö hvítar rósir skreyttu salinn, til minningar um þá sjö sem látið hafa lífið í umferðinni það sem af er þessu ári, sem og bíll sem hulinn var svartri ábreiðu. Ragnheiður sagði skýringuna þá að í hvert skipti sem einhver léti lífið í bílslysi, væri bíllinn tekinn úr umferð og meðan hann stæði uppi hjá VÍS væri breidd yfir hann svört ábreiða. Hún sagði að alltaf færu ónot um sig og annað starfsfólk VÍS þegar þau kæmu til vinnu og sæju svartan bíl standa inni á gólfi.
Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Fleiri fréttir Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Sjá meira