Innlent

Danskir stjórnmálamenn hafa áhyggjur af fríblaði

MYND/Vísir

Danskir stjórnmálamenn virðast hafa nokkrar áhyggjur af fríblaðinu sem Dagsbrún er að hrinda af stokkunum, í Danmörku. Margir danskir þingmenn eru sagðir tilbúnir til þess að endurskoða stuðning við hin hefðbundnu dagblöð.

Í viðtali við Jótlandspóstinn, í dag, segir íhaldsþingmaðurinn Carina Christiensen, að hún leggi til að menningarmálanefnd þingsins haldi ráðstefnu, þar sem stjórnmálamenn og útgefendur hittist til þess að ræða stöðu mála. Stjórnarþingmaðurinn Jens Rhode er einnig áhyggjufullur og telur að hreint blóðbað sé í uppsiglingu. Bæði Carina og Jens segja þó að pólitísk afskipti af málinu geti ekki orðið nema takmörkuð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×