Innlent

Spáir harkalegri lendingu íslenska hagkerfisins

MYND/Vísir

Poul Rawkins, sérfræðingur Fitch Ratings sagði á fundi í London í gær að vaxandi líkur væri á að íslenska hagkerfið stefndi í harkalega lendingu. Það var Fitch Ratings, sem breytti horfum á lánshæfi íslenska ríkisins úr stöðugum í neikvæðar, í febrúar síðastliðnum.

Greiningardeildir íslensku bankanna telja að þessi ummæli eigi þátt í þeirri lækkun sem varð í Kauphöllinni í gær, eða um tæp 2,5%. Rawkins bjóst einnig við að fasteignaverð ætti eftir að lækka á Íslandi og þá gæti krónan tekið aðra dýfu niður á við , eftir þá dýfu, sem hún hefur nú þegar tekið í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×