Innlent

Eldur kom upp í íbúðarhúsi

Eldur kom upp í íbúðarhúsi í Hæðargarði í Nesjum á Höfn í Hornafirði um klukkan eitt í dag. Fréttavefurinn Horn.is greinir frá því að mikinn reyk hafi lagt frá húsinu þegar Slökkvilið Hornafjarðar kom á staðinn. Slökkviliðsmenn náðu þó fljótt að ráða niðurlögum eldsins, en reykkafarar fóru inn í húsið að upptökum eldsins. Húsráðendur voru heima þegar eldsins varð vart en þeir komustu út úr húsinu af sjálfsdáðum og hringdu síðan á aðstoð. Talið er að eldurinn hafi kviknað í út frá loftljósi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×