Innlent

Hópferðabíll með 16 ferðamenn valt

Hópferðabíll með sextán erlenda ferðamenn innanborðs valt á Bláfellshálsi á Kjalvegi í gær. Enginn slasaðist alvarlega en ökumaðurinn var fluttur á Landspítalann. Lögreglu- og sjúkrabílar voru sendir á vettvang en þá var fólkið komið yfir í annan hópferðabíl. Að sögn lögreglu var vegurinn eitt forarsvað og djúpar rákir í honum, en ferðinni var heitið í snjósleðaferð á jökul. Samkvæmt upplýsingasíma Vegagerðarinnar er Kjalvegur opinn fjallabílum að Bláfjallshálsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×