Heildarafli hefur dregist saman um 460 þúsund tonn 12. júní 2006 17:30
Heildarafli þar sem af er þessu fiskveiðiári hefur dregist saman um 460 þúsund tonn miðað við sama tíma á síðasta fiskveiðiári. Nýjar mælingar á ástandi sjávar við Ísland sýna hins vegar að uppvaxtarskilyrði fyrir sunnan, vestan og norðan land eru með betra móti. Fiskistofa sendi í dag frá sér bráðabrigðatölur um heildarafla í maímánuði. Í þeim kemur fram að aflinn var nærri 179 þúsund tonn í síðasta mánuði sem er um 37 þúsund tonnum meira en í sama mánuði í fyrra. Aukningun má rekja til aukins botnfisks- og kolmunnafla. Fiskveiðiárið nær yfir tímabilið 1. september til 31. ágúst næsta ár og þar sem af er þessu fiskveiðiári hafa veiðst um 975 þúsund tonn í heildina. Það er um 460 þúsund lestum minna en á sama tíma í fyrra þegar heildaraflinn nam rúmlega 1,4 milljónum tonna. Ástæður þessa eru einkum minni loðnuafli ár, hann var um 600 þúsund tonn í lok maí í fyrra en aðeins 184 þúsund tonn nú. Þrátt fyrir þetta berast jákvæð tíðindi frá Hafrannsóknarstofnuninni sem nýverið lauk vorleiðangri sínum þar sem kannað var ástand sjávar. Meginniðurstöðurnar þar voru þær að hiti og selta voru um og yfir meðallagi alls staðar í kringum landið og átumagn var víðast yfir langtímameðaltali. Þetta þýðir að sögn Ástþórs Gíslasonar, leiðangursstjóra í ferðinni, að uppvaxtarskilyrði fyrir seiði eru með betra móti fyrir sunnan, vestan og norðan land. Ástþór segir þó varhugavert að draga of víðtækar ályktanir af niðurstöðunum varðandi veiðar á næstu árum þar sem fleiri þættir en áta, hitastig og selta hafi áhrif á afkomu nytjastofna. Niðurstöðurnar séu jákvæð merki fyrir afkomu stofnanna en þættir eins og breytt útbreiðslusvæði loðnunnar séu enn órannsakaðir og þá þurfi að fylgjast með þróuninni í sjónum næstu árin til þess að fá frekari hugmyndir um það hvaða áhrif ástandið í sjónum hafi á nytjastofnana.
Fréttir Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira