Innlent

Kröfu verjenda hafnað

MYND/GVA

Kröfu verjenda tveggja sakborninga í Baugsmálinu um að settur saksóknari í málinu, Sigurður Tómas Magnússon, og Helgi I. Jónsson, dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, beri vitni í málinu, var hafnað í Héraðsdómi í dag. Verjendur fóru fram á það fyrir helgi, á þeim forsendum að Sigurður og Helgi hefðu átt í bréfasamskiptum áður en ný ákæra var gefin út í málinu. Verjendurnir telja samskiptin óeðlileg og brjóta í bága við vinnureglur, en Sigurður og Helgi ræddu meðal annars meint vanhæfi Péturs Guðgeirssonar héraðsdómara til að fara með málið, en hann var formaður dómsins þegar fyrri ákæra málsins fór fyrir dóm. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort úrskurður héraðsdóms í dag verði kærður til Hæstaréttar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×