Ekki færður til vegna umkvartana dómsmálaráðherra 12. júní 2006 12:16 MYND/Róbert
Jóhann Hauksson, blaðamaður Fréttablaðsins, hefur sagt upp starfi sínu eftir að hafa verið færður úr skrifum um stjórnmál. Ritstjóri Fréttablaðsins segir ekkert hæft í þeirri fullyrðingu Jóhanns að hann hafi verið færður til í starfi vegna umkvartana dómsmálaráðherra um skrif hans. Jóhann Hauksson hefur verið sá blaðamaður Fréttablaðsins sem mest hefur fjallað um þingmál og stjórnmál almennt. Hann segir að í síðustu viku hafi sér verið tilkynnt á fundi með Þorsteini Pálssyni ritstjóra og Sigurjóni M. Egilssyni fréttaritstjóra að hann myndi ekki skrifa frekar um stjórnmál. Ástæðan var sögð sú, að sögn Jóhanns, að hann blandaði eigin skoðunum í fréttaskrif. Jóhann hafi krafið þá um dæmi en engin fengið, en tilteknar hafi verið umkvartanir frá Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra vegna skrifa Jóhanns um hlerunarmálið svokallaða. Þorsteinn Pálsson var gestur Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur og Lóu Aldísardóttur á Fréttavaktinni á NFS í morgun. Þar sagði hann að ekki minnsti flugufótur væri fyrir þeirri staðhæfingu að tilfærsla Jóhanns í starfi hafi eitthvað með umkvartanir Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra að gera. Fréttaritstjóri Fréttablaðsins hafi rætt við sig um breytingar á þingfréttaskrifunum fljótlega eftir að Þorsteinn hóf störf á blaðinu fyrr á þessu ári. Hann sjálfur hafi hins vegar viljað að Jóhann myndi sinna þeim skrifum a.m.k. út vorþingið. Í millitíðinni hafi fréttaritstjórinn gefið út leiðbeiningar um pistilinn Frá degi til dags sem Jóhann skrifaði gjarnan. Þeirra leiðbeininga hafi Jóhann aftur á móti ekki tekið tillit til í skrifum sínum. Í samtali við fréttastofu NFS í morgun sagðist Jóhann vísa því algerlega á bug að hann hafi ekki farið eftir umræddum leiðbeiningum. Jóhann hefur nú sagt up störfum á blaðinu og var skömmu fyrir hádegi verið að ganga frá starfslokasamningi hans.
Fréttir Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Sjá meira