Fá ekki hærri laun 20. maí 2006 20:30
Fastráðnir erlendir hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum fá ekki hærri laun en íslenskir, segir hjúkrunarforstjóri spítalans. Hún getur þó ekki svarað því af eða á hvort hjúkrunarfræðingar sem koma frá norrænni starfsmannaleigu í sumar fái hærri eða lægri laun en þeir íslensku. Nú starfa um fimmtíu erlendir hjúkrunarfræðingar við Landsspítalann. Útlit er fyrir að þeim fjölgi á næstunni, enda hefur Landsspítalinn auglýst eftir hjúkrunarfræðingum á öllum Norðurlöndunum vegna mannekklunnar hér. Anna Stefánsdóttir hjúkrunarforstjóri segir erlendu hjúkrunarfræðingana ganga inn í íslenska kjarasamninga og því á sömu launum og íslenskir hjúkrunarfræðingar. Þetta gildi um alla sem ráðnir séu til lengri tíma. Öðru máli gegnir hins vegar um 20 hjúkrunarfræðinga sem Landspítalinn hefur samið við danska starfsmannaleigu um ráðningu á í níu vikur í sumar. Elsa Friðfinnsdóttir, formaður félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir að þessir hjúkrunarfræðingar fái hærri laun en þeir íslensku. Hjúkrunarforstjórinn vill ekki staðfesta að þetta sé rétt. Hún segist ekki geta gefið upp hvað það kosti að ráða þessa hjúkrunarfræðinga til starfa. Starfsmannaleigan fái eina upphæð og það sé svo hennar að semja við hjúkrunarfræðingana.
Fréttir Innlent Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ Sjá meira