Innlent

"Mama Africa" tók lagið á fundi Unicef

velgjörðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna og einn virtasti tónlistamaður síðustu aldar.
velgjörðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna og einn virtasti tónlistamaður síðustu aldar. mynd/vísir

Miriam Makeba, velgjörðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna og einn virtasti tónlistamaður síðustu aldar, hitti aðstandendur Unicef á Íslandi á Hótel Nordica í dag.

Makeba er hingað er komin til að taka þátt í Listahátíð Reykjavíkur. Hún hefur oft verið nefnd Mama Africa af tveimur ástæðum. Fyrir það fyrsta hefur hún um áraraðir verið einn af fremstu listamönnum heims og með tónlist sinni hefur hún vakið athygli á menningu Afríku. Í annan stað hefur hún unnið ötullega að málefnum barna sem eiga um sárt að binda.

Á fundum steig Einar Sveinsson stjórnarformaður Glitnis fram og lýsti yfir aðdáun sinni á störfum söngkonunnar og sagði fyrirtæki sitt hafa mikinn áhuga á að styrkja barnastarf í Afríku og þá sérstaklega meðal stúlkna en þær eiga oftast mun erfiðara uppdráttar en drengir.

Þó Makeba sé tæplega áttræð var engan bilbug á henni að finna. Hún vinnur nú hörðum höndum að því að stækka heimili fyrir vandalaus börn í heimalandi sínu Suður-Afríku samhliða því sem hún starfar að tónlist sinni. Hún lauk stuttri ræðu sinni á því að minna á mikilvægi stúlkna í samfélaginu. Það væru þær sem seinna yrðu mæðurnar sem myndu fóstra komandi kynslóðir og til að árétta mál sitt söng hún lag tileinkað móður sinni og mæðrum um heim allan.

Makeba hefur sungið inn á ríflega þrjátíu hljómplötur um dagana. Þótt hún hafi alla tíð fremur litið á sig sem tónlistarmann fremur en stjórnmálamann hefur hún hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir maráttu sína fyrir auknum mannréttindum. Söngkonan hefur nú ákveðið að draga sig í hlé frá tónlistinni og helga krafta sína mannréttindamálum. Því verða tónleikar hennar á morgun, á vegum Listahátíðar Reykjavíkur, þeir síðustu sem hún hyggst halda á löngum ferli sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×